Psalms 76

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Asafs-sálmur. Ljóð. 2Guð er augljós orðinn í Júda, í Ísrael er nafn hans mikið. 3Skáli hans er í Salem og bústaður hans á Síon. 4Þar braut hann sundur leiftur bogans, skjöld og sverð og hervopn. [Sela] 5Þú birtist dýrlegur, ógurlegri en hin öldnu fjöll. 6Hinir harðsvíruðu urðu öðrum að herfangi, þeir sofnuðu svefni sínum, og hendurnar brugðust öllum hetjunum. 7Fyrir ógnun þinni, Jakobs Guð, hnigu bæði vagnar og hestar í dá. 8Þú ert ógurlegur, og hver fær staðist fyrir þér, er þú reiðist? 9Frá himnum gjörðir þú dóm þinn heyrinkunnan, jörðin skelfdist og kyrrðist, 10þegar Guð reis upp til dóms til þess að hjálpa öllum hrjáðum á jörðu. [Sela] 11Því að reiði mannsins verður að lofa þig, leifum reiðinnar gyrðir þú þig. 12Vinnið heit og efnið þau við Drottin, Guð yðar, allir þeir sem eru umhverfis hann, skulu færa gjafir hinum óttalega, [ (Psalms 76:13) honum sem lægir ofstopa höfðingjanna, sem ógurlegur er konungum jarðarinnar. ]
Copyright information for Icelandic